Miðvikudagur, 22 Febrúar 2012

Þú ert hér: Um okkur Sjálfboðaliðar óskast

Sjálfboðaliðar óskast

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Slóðavinir er stækkandi félagsskapur sem hefur innanborðs mikið af mjög hæfileikaríku fólki. Félagið þarf á ykkur að halda til að ganga í þau fjölmörgu verkefni sem nú þegar er unnið að, eða stefnt er á að koma af stað.

Hér að neðan er listi með verkefni sem okkur vantar aðstoð með. Áhugasamir hafi samband við félagið, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

 


Staðan

Kynningar- og fræðsluefni

Unnið er að gerð kynningar- og fræðsluefnis fyrir félagið til að birta á heimasíðum, á fyrirlestrum og fundum. Um er að ræða Adobe Flash teiknimyndir sem eru 3-5mín á lengd. Lagður hefur verið grunnur að útliti myndanna og stærð. Myndirnar eru unnar eftir handriti og taka fyrir eitt tiltekið málefni hverju sinni. Dæmi um efnistök sem unnið verður með er hávaði, samnýting, tillitsemi og ábyrgð.

Leitað er að sjálfboðaliðum með eftirfarandi þekkingu og hæfileika:

- Þekking og reynsla af gerð Flash myndskeiða.

- Teiknari

- Skapandi og frjó hugsun.

 

Dæmi um svona efni má sjá hér: http://www.vidirsig.com/temp/slodavinir/havadi/havadi_haegt.htm

Áhugasamir hafi samband við félagið, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Teiknivinna á frumstigi. Hugmyndavinna komin lengra.

Uppkast að þremur handritum tilbúin.

(Uppfært 2. maí 2010)

Fréttaritarar fyrir slodavinir.org

Félagið leitar að fréttariturum til að setja fréttir og annað áhugavert efni á slodavinir.org.

Leitað er að sjálfboðaliðum með eftirfarandi þekkingu og hæfileika:

- Gott vald á íslensku og á auðvelt með að koma efni frá sér á ritað mál.

- Þekking á starfsemi vefmiðla og fjölmiðlum almennt.

 

Sérstaklega vantar sjálfboðaliða sem geta aflað frétta sem tengjast notkun stórra ferðahjóla og fjórhjóla.

Áhugasamir hafi samband við félagið, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Á bilinu 2-3 félagsmenn sjá um að skrifa á vefinn.

(Uppfært 2.maí 2010)

Hönnun kynningaspjalda

Félagið á tvær tómar veggspjaldakassettur. Því vantar okkur hugmyndaríkan hönnuð sem gæti sett saman fyrir okkur skemmtilegar veggspjöld sem bæði kynnti félagið og bæru boðskap til þeirra sem sjá spjöldin.

Hugmyndin er að nota þessi spjöld t.d. þegar við förum á sýningar og höldum fundi.

Hér til hliðar er dæmi um svon kasettu veggspjald.

Verkefnið er á frumstígi.

(Uppfært 3.maí 2010)

Úrvinnsla gagna í GIS

Félaginu vantar að fá til liðs við sig einhvern sem hefur áhuga, þekkingu og reynslu á úrvinnslu og meðhöndlun á gögnum í GIS eða LUK (landfræðilegt upplýsingakerfi).

Nýlega færðum við allt gagnasafnið okkar úr GPX formi og yfir í shapefile og höfum það á stefnuskránni að vinna öll gögn eingöngu í GIS umhverfinu.

Leitað er að sjálfboðaliðum með eftirfarandi þekkingu:

- Reynsla af meðhöndlun á shapefile-skrám.

- Þekkingu á vinnslu í GIS-forritum (ArcInfo og Qgis sem dæmi).

- Þekkingu á uppbyggingu gagnagrunna í vinnslu með landfræðileg gögn.

- Þekkingu á kortagerð.

 

Hér er linkur á forritið sem við notum: Qgis

Unnið er að því að búa til handbók um gagnagrunna félagsins. Öll gögn félagsins eru komin í shapeskrá og er unnið að því að aðlaga þau að shapefile umhverfinu.

(Uppfært 4. maí 2010)

 

Fleiri verkefni bíða þess að verða sett inn.