Stofnun og markmið
Ferða- og útivistarfélagið Slóðavinir (F.Ú.S.) var stofnað 15. janúar 2008 af rúmlega 120 notendum tví- og fjórhjóla. Strax á fyrstu dögum félagsins, var fjöldi félagsmanna að nálgast tvö hundruð.
Yfirlýst markmið félagsins eru:
- að standa vörð um tilvist og akstur á torleiðum, þjóðleiðum og vegslóðum, hvort sem er á lág- eða hálendi í samræmi við lög.
- að vernda og viðhalda akstursleiðum í þágu landnýtingar fyrir vélknúin farartæki.
- að útbreiða og efla notkun vélhjóla sem almenningsíþrótt, heilsusamlega heilsurækt og útiveru.
- að auka þekkingu félagsmanna sem og almennings, fjölmiðla, stjórnvalda og landeigenda á ferðalögum og útivist þeirra sem aka um á vélhjólum.
- að miðla upplýsingum um torleiðir, þjóðleiðir og vegslóða til félagsmanna.
- að gefa gott fordæmi um umgengni með jákvæðri eftirbreytni og umræðu um náttúruvernd.
- að gæta hagsmuna félagsmanna varðandi búnað og annað er lítur að vélhjólum i samráði við viðkomandi yfirvöld.
Stjórn starfsárið 2010
Stjórn félagsins er þannig skipuð:
Jakob Þór Guðbjartsson, formaður
Róbert L. Tómasson, gjaldkeri
Guðmundur T. Ólafsson, ritari
Kristján M. Arnarson
Ásgeir Ö. Rúnarsson
Varamenn í stjórn:
Hjörtur L. Jónsson
Hilde B. Hundstuen
Félagsgjald
Árgjaldið er kr. 4.500 fyrir einstakling, en kr. 7.500 fyrir fjölskyldur.




