Ferða og útivistarfélagið Slóðavinir er opið öllu áhugafólki um ferðalög og útivist á tví-, fjór- og sexhjól.
Með því að gerast félagsmaður styður þú við bakið á því gróskumikla starfi sem fer fram hjá félaginu og hjálpar til að gera félagið gildandi afl í baráttunni fyrir áframhaldandi ferðalögum á vegslóðum.
Það eru margar ástæður fyrir því að hjólafólk skráir sig í félagið:
- Félagsskapurinn - hér hafa myndast mjög þéttir hjólahópar og góð vinatengsl.
- Fróðleiksfýsn - félagið stendur fyrir mörgum námskeiðum auk þess sem spjallborðið er hafsjór af fróðleik.
- Ferðalögin - Allt árið stendur félagið fyrir skipulögðum ferðum um allt land sem eru við allra hæfi.
- Hjólaleiðir - Það er ekkert alltaf alveg sjálfgefið hvar best og skemmtilegast er að hjóla. Þeir sem mæta á viðburði félagsins eru fljótir að ná sér í upplýsingar.
Félagsgjaldið fyrir starfsárið 2011 er 4500kr fyrir einstaklinga en 7500kr fyrir fjölskyldur.
Sérstök athygli er vakin á reitnum AFÞAKKA GREIÐSLUSEÐIL hér að neðan, en með því að haka í hann verður ekki sendur greiðsluseðil, heldur gerum við ráð fyrir að greiðsla félagsgjalda fari fram með millifærslu á reikning félagsins (sjá nánar hér að neðan). |