Heim Slóðaakstur í hóp

Dagskrá félagsins

Last month September 2010 Next month
M Þ M F F S S
week 35 1 2 3 4 5
week 36 6 7 8 9 10 11 12
week 37 13 14 15 16 17 18 19
week 38 20 21 22 23 24 25 26
week 39 27 28 29 30
 

Næstu viðburðir

29.Sep Félagsfundur (Fundur Miðvikudagur @20:00)
10.Oct Nætur-endúró (Dagsferð Sunnudagur @20:00)
13.Oct Félagsfundur (Fundur Miðvikudagur @20:00)
27.Oct Aðalfundur (Fundur Miðvikudagur @00:00)
Akstur í hóp Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Einkunn notenda: / 2
LélegGóð 
Mánudagur, 18. maí 2009 15:59

 Til að tryggja að hópakstur á mótorhjólum gangi vel fyrir sig hefur verið búið til kerfi sem á að tryggja jafnt flæði og öryggi hópsins.

Kostirnir við þetta kerfi sem hér er kynnt er margþætt:

  • Það er aðeins einn sem stýrir hvert hópurinn er að fara (rauður).
  • Það er alltaf einn ákveðin hjólari sem fær það hlutverk að vera aftastur (fjólublár).
  • Hópurinn þarf ekki allur að stoppa á gatnamótum heldur getur hjólað áfram og þannig viðhaldið jöfnu flæði.
  • Engin á að geta "týnst" í svona kerfi. 
  • Hraðir  hjólarar geta auðveldlega hjólað með þeim sem hægari eru. Þeir gæta hinsvegar oftar þurft að bíða á gatnamótum Wink.

Myndirnar hér fyrir neðan sína fimm hjól á svartri slóð.  Á slóðinni eru tvö gatnamót.

 


1. Fremsti (rauður) og aftasti (fjólublár) eru lykil menn í hópnum. Fremsti leiðir hópinn og aftasti passar að enginn sé skilinn eftir. Hjólahópur nálgast gatnamót.

 

 2. Til að tryggja að engin í hópnum fari óvart rangan afleggjara bíður næstfremsti hjólarinn (gulur) við gagnamótin meðan hópurinn hjólar framhjá.

 

 3. Guli heldur  stöðu sinni við gatnamótin þangað til hann hefur tryggt að aftasti hjólarinn hafi séð sig.

 

4. Hópurinn heldur áfram.

 

 5. Á næstu gatnamótum er komið að bláum að bíða á gatnamótum.

 

 6. Blái heldur stöðu sinni við gatnamótin þangað til hann hefur tryggt að aftasti hjólarinn hafi séð sig.

 

7.  Hópurinn heldur áfram.

 

 Atriði sem þarf að hafa í huga þegar hjólað er í hóp:

  1. Ef þú sérð ekki lengur manninn sem var fyrir aftan þig, er líklegt að hann hafi stoppað eða verulega hægt á sér.  EKKI halda bara áfram og vona það besta. Stoppaðu og athugaðu hvað hefur gerst.  Þannig tryggjum við að löng hjólaröð verði aldrei lengri en svo að fremri hjólari sjái næsta hjólara fyrir aftan sig.
  2. Það er bannað að rása milli hjólfara. Það gildi sömu reglur varðandi framúrakstur á slóð eins og úti í umferðinni. Almenn umferð í hægra hjólfari og framúrakstur á því vinstra.
  3. Ekki hjóla svo þétt upp að manninum fyrir framan þig að þú eigir ekki möguleika á að bremsa ef svo ber undir.
  4. Þegar mikið ryk er á slóðum getur verið nauðsynlegt að hjóla hlið við hlið. Rykið spillir sýn og því getur verið nauðsynlegt að stoppa oftar til að athuga með félaga sem eru fyrir aftan.