Heim Um slóðavini

Dagskrá félagsins

Last month September 2010 Next month
M Þ M F F S S
week 35 1 2 3 4 5
week 36 6 7 8 9 10 11 12
week 37 13 14 15 16 17 18 19
week 38 20 21 22 23 24 25 26
week 39 27 28 29 30
 

Næstu viðburðir

29.Sep Félagsfundur (Fundur Miðvikudagur @20:00)
10.Oct Nætur-endúró (Dagsferð Sunnudagur @20:00)
13.Oct Félagsfundur (Fundur Miðvikudagur @20:00)
27.Oct Aðalfundur (Fundur Miðvikudagur @00:00)
Um slóðavini Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Þriðjudagur, 15. janúar 2008 17:29

Stofnun og markmið

Ferða- og útivistarfélagið Slóðavinir (F.Ú.S.) var stofnað 15. janúar 2008 af rúmlega 120 notendum tví- og fjórhjóla. Strax á fyrstu dögum félagsins, var fjöldi félagsmanna að nálgast tvö hundruð.

Yfirlýst markmið félagsins eru:

  • að standa vörð um tilvist og akstur á torleiðum, þjóðleiðum og vegslóðum, hvort sem er á lág- eða hálendi í samræmi við lög.
  • að vernda og viðhalda akstursleiðum í þágu landnýtingar fyrir vélknúin farartæki.
  • að útbreiða og efla notkun vélhjóla sem almenningsíþrótt, heilsusamlega heilsurækt og útiveru.
  • að auka þekkingu félagsmanna sem og almennings, fjölmiðla, stjórnvalda og landeigenda á ferðalögum og útivist þeirra sem aka um á vélhjólum.
  • að miðla upplýsingum um torleiðir, þjóðleiðir og vegslóða til félagsmanna.
  • að gefa gott fordæmi um umgengni með jákvæðri eftirbreytni og umræðu um náttúruvernd.
  • að gæta hagsmuna félagsmanna varðandi búnað og annað er lítur að vélhjólum i samráði við viðkomandi yfirvöld.

Stjórn starfsárið 2010

Stjórn félagsins er þannig skipuð:

Jakob Þór Guðbjartsson, formaður
Róbert L. Tómasson, gjaldkeri
Guðmundur T. Ólafsson, ritari
Kristján M. Arnarson
Ásgeir Ö. Rúnarsson

Varamenn í stjórn:

Hjörtur L. Jónsson
Hilde B. Hundstuen

Félagsgjald

Árgjaldið er kr. 4.000 fyrir einstakling, en kr. 7.000 fyrir fjölskyldur.