Núna um helgina verður farin fyrsta formlega Slóðavinaferð ársins og er það að venju fjórhjólamenn sem ríða á vaðið.
Ferðin er hugsðuð fyrir félagsmenn og er nánari lýsing inná spjallinu, sjá hér.
Þessi fyrsta ferð er gerð útfrá Fljótshlíð og veðurspáin er flott, kalt en fallegt veður, bjart og líklega stillt veður. Má reikna með að færið verði gott, líklega harðfenni. Mér skilst að það sé ennþá pláss fyrir góða félaga.




