Norðurferðin heppnaðist alveg frábærlega. Á fimmtudag keyrðum við inn í Flateyjadali frá brúnni yfir Fnjóská að austanverðu. Fyrst keyrðum við slóðann með ánni í átt að afleggjaranum að Flateyjardal. Í bakaleiðinni fórum við aðeins niður eftir ánni og yfir hana og keyrðum upp með ánni hinum megin í gegn um skóginn, alls 122km.
Síðan var keyrt á Kópasker og á föstudag var keyrt um Öxarfjörð og Kelduhverfi frábærar leiðir sem er draumur allra hjólara 178 km. lágu þann daginn.
Á laugardeginum var Melrakkasléttan könnuð, svæði sem lítið hefur verið kannað af hjólafólki, misjafnir slóðar og mishraðir, en skemmtilegir og farið var m.a. á nyrsta tanga landsins og stillt upp fyrir myndartöku. Á laugardeginum voru eknir 166km.
Á sunnudeginum var tekin stuttur rúmlega 40km.sprettur, en undirritaður ásamt Steinu og Hilmari vorum eftir. Þeir sem keyrðu lengst í þessari ferð fóru því yfir 500 km., en þeir sem óku styðst óku tæpa 400km.
Frábær helgi (hefði allveg viljað vera í viku), kveðja H.Líklegur




