Laugardagur, 19 Maí 2012

Þú ert hér: Fréttaveita-section Svitabaðið Langur laugardagur Slóðavina 9 júlí

Langur laugardagur Slóðavina 9 júlí

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
IMG_1815Síðastliðin laugardag var hinn árlegi "Langi laugardagur" Slóðavina en þá er markmiðið að hjóla ekki minna en 350 km þann dag.

Dagleiðin hafði verið ákveðin 362 km og átti að hefjast við Meyjarsætið, vegna smá hrakningar nokkura félaga að komast þangað gekk tímaáætlun ekki alveg eftir, tafðist brottför um tæpa klukkustund.
Það voru 12 félagar sem hófu ferðina við Meyjarsætið og einn sem ætlaði að hitta okkur á Geysi, þegar hóparnir skiluðu sér þangað var orðin smá breyting á, 2 urðu að hætta för en það voru samt 11 sem héldu áfram í 3 hópum.





IMG_1882Ferðin uppí Kerlingarfjöll gekk vel, hjólað var upp Hrunamannaafrétt inní Leppitungur, leiðin var greið en 2 snjóskaflar urðu á leið okkar til þess að minna okkur á að vetur konungur er bara rétt að sleppa tökum sínum á hálendinu.













IMG_1884Eftir að hóparnir höfðu farið í röð við bensíndæluna og borðað í Kerlingarfjöllum var haldið niður Leppitungur aftur nema smá hópur sem hafði komið seinna uppí Kerlingarfjöll ákvað að fara kjalveg að Geysir.
Gekk ferðinnokkuð vel, eitt sprungið dekk svona til að fá smá tilbreytingu í hana og svo áfram niður að Geysir.
Þegar þangað var komið var farið að kvölda og týndist aðeins úr hópnum og eftir smá spjall var ákveðið að halda styðstu leið heim enda höfðu safnast upp smá tafir og ef leiðin hefði verið kláruð samkvæmt leiðarplani hefðu menn verið að skila sér líklega um 23 í Meyjarsætið.
Þrátt fyrir styttingu var ferðin og leiðin góð, frábærir ferðafélagar sem sanna en einu sinni hvað svona blandaður félagsskapur er skemmtilegur.