Hin árlega Hvítasunnuferð Slóðavina var farin síðustu helgi.Mæting var við Hólaskóg þar sem gist var og hjólað þaðan í margar áttir.
Á laugardeginum var skipt í 3 hópa sem hjóluðu mismikið, frá rúmum 60km uppí 230km vítt og breitt um sveitina. Um kvöldið þegar hóparnir týndust í hús eftir ýmsar uppákomur, sprungin dekk, bilaða mótora, viðsnúninga vegna vatnavaxta ofl þá var eldaðir góður matur og fólk slakaði á í saununni hjá Unnari Hólaskógakóngi.
Þó nokkuð týndist úr hópnum á laugardagskvöldinu sökum ýmsa anna hjá fólki og vorum við 6 sem hjóluðum á sunnudeginum. Skiptum við okkur í tvo hópa, einn sem ætlaði að freista þess að komast inní Landmannalaugar og annar sem tók stefnuna á hamingjuslóðana.
Helgin tókst glimrandi vel, góður hópur og skemmtilegar leiðir og má sjá eitthvað af þeim myndum sem teknar voru hér.




