Um síðustu helgi fóru nokkrir slóðavinir í fjórhjólaferð í Fljótshlíð. Tvö hjól voru mætt rétt fyrir hádegi á leið upp Eyjafjallajökul en önnur tvö mættu síðar um daginn og fóru þeir upp í Tindfjöll, komust að efsta skálanum og fengu hreint frábært útsýni.
Það reyndist býsna strembið að fara upp á Eyjafjallajökul, leiðin frá Seljalandsfossi byrjaði ansi brött en lítill snjór var neðst. Þegar leiðin var ca. hálfnuð var snjórinn farinn að þyngjast og þurftu þeir að finna sér aðra leið upp á kömbum og niður brattar hlíðar. Við jaðar jökulsins var annað hjólið fast og hitt að erfiða mikið en þá birtist fjórhjól á beltum með þann fasta í togi og fóru þeir í samfloti á topp Eyjafjallajökuls í um 1600 metra hæð.
Ótrúlegt útsýni blasti við þeim og sást yfir á Vestmannaeyjar og lengst upp á hálendið, Kerlingarfjöll, Langjökull, Hofsjökull, Vatnajökull og allt þar á milli.
Ferðalangarnir mættu þremur gallvöskum göngumönnum uppá jöklinum, einum leiðsögumanni með tvo ferðamenn sem lentu svo í sjálfheldu og voru sótt af þyrlu Landhelgisgæslunar. Þau voru víst orðin ansi köld því það gerði kolvitlaust veður, blindbylur og 10-15 stiga frost.
Eitt hjólanna bilaði svo þegar ca 6 km. voru eftir niður á veg og annað niðri á vegi. Þeir voru sóttir af hinum ferðafélögunum og næsti dagur fór í björgunarleiðangur og smá skrepp hjá hinum sem enn voru með hjólin í lagi.
Það má sjá fleiri myndir úr ferðinni hér. Það eru alltaf ævintýri á fjöllum.

Svitabaðið













