Kæru félagsmenn Ferða og útivistarfélagsins Slóðavina,
Ákvörðun hefur verið tekin að fresta aðalfundi um 2 vikur frá áður auglýstri tímasetningu, vegna persónulegra ástæðna stjórnarmanna.
Aðalfundur Ferða og útivistarfélagsins Slóðavina verður því haldinn miðvikudagskvöldið 9. nóvember í húsakynnum Arctic Trucks, Kletthálsi. Fundurinn hefst kl. 20:00. Í lok fundar verður boðið upp á kaffiveitingar.
Dagskrá:
1. Setning fundar og dagskrá kynnt.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
3. Skýrsla stjórnar
4. Umræða um skýrslu stjórnar
5. Skoðaðir reikningar lagðir fram og skýrðir
6. Umræða um reikninga og þeir bornir upp til samþykktar
7. Skýrsla nefnda
8. Kjör stjórnar og varamanna. Í boði er sæti formanns, tveggja stjórnarmanna og varamanns
9. Tillögur/lagabreyting
a. Tillaga að stofnun Ferðafrelsissjóðs kynnt og lög sjóðsins lögð til samþykktar. Lögin má sjá í heild sinni á spjallborði félagsins.
10. Kjör tveggja skoðunarmanna
11. Önnur mál
12. Fundarslit
Rétt til setu á aðalfundi hafa einungis þeir sem hafa staðið full skil á gjöldum til félagsins [3.gr. laganna] Félagar eru hvattir til að mæta og með því taka virkan þátt í starfi félagsins.
Lög félagsins má nálgast á heimasíðu félagsins, www.slodavinir.org.




