Félagsmenn fjölmenntu á myndakvöld í kvöld þar sem Stefán og félagar sýndu okkur hinum í máli og myndum frá stæðstu ferð sem farin hefur verið á vegum Slóðavina.Ferðin tók 7 daga og þeir sem hjóluðu lengst náðu 2000 km.
Það gekk á ýmsu hjá þeim ferðafélögum og var gaman að sjá hvaða svaðilförum þeir lentu, snjór, ár, drulla og laus sandur. Öllu þessu fengu þeir að finna fyrir ásamt ýmsum bilunum, allt frá sprungnum þekkjum yfir í að þurfa að gera upp mótor yfir nótt með aðstoð Slóðavina sem búa í nágrenni leiðarinar.
Einhver afföll urðu í ferðinni og smá óhöpp en allir skiluðu þeir sér heim að mestu leyti í heilu lagi.
Skemmtilegt ævintýri sem gaman var að sjá og heyra í máli og myndum.
Hugsanlega gæti svona ferð orðið árleg ef áhugi félagsmanna er fyrir hendi.




