Laugardagur, 19 Maí 2012

Þú ert hér: Fréttaveita-section Innipúkinn Slóða- og Ferlamál rædd

Slóða- og Ferlamál rædd

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Fundur_um_slaml_og_vefsjÁ síðasta félagsfundi kynnti Jón G Snæland fyrir okkur ástæðu þess að Ferðaklúbburinn 4x4 ákvað að birta allt ferlasafn sitt fyrir almenning og einnig ástæðu þess að strax á fyrstu dögum var byrjað að grisja ferlana að kröfu stjórnavalda.
Þetta var ansi fróðlegt og ótrúlega að sjá á yfirlitskorti sem hann var með hvað er búið að friða mikið landsvæði og eiginlega skelfilegra að sjá öll þau svæði sem fyrirhugað er að friða og þar af leiðandi loka fyrir eða takmarka að miklu leyti umferð vélknúina ökutækja.
Þessi mál eru að laumast mjög hratt í gegnum kerfið og virðist sem að stjórnvöld séu viljandi að takmarka upplýsingar og aðgengi almennings að þessum málum svo það sé hægt að klára vinnu við þau í kyrrþey þar til það er of seint fyrir okkur að koma með athugasemdir eða reyna stoppa þessi illvirki þeirra.

Jakob Þór Guðbjartsson kynnti fyrir okkur vefsjá sem Slóðavinir hafa verið að vinna í síðustu misseri og er nýbúið að opna fyrir félagsmenn, einnig hélt hann svo fyrirlestur um stöðu ferlamála og fór yfir hvernig stjórnvöld ætla að loka sem mestu fyrir 2016 en þá á að vera komið samhæft kort sem sýnir hvar "elítan" hefur ákveðið að ferðafólk á vélknúnum ökutækjum má vera og hvar ekki, það þarf líklega ekki að taka það fram að svæðið sem við megum ekki vera á er talsvert stærra en hitt.

Fulltrúum yfirvalda var boðið að taka þátt í þessum fundi með okkur og sitja fyrir svörum en einhverra hluta vegna þá gat engin mætt á svæðið, kannski lýsandi fyrir þau vinnubrögð sem eru í hávegum höfð hjá yfirvöldum, hundsa athugasemdir og ráð þeirra sem ferðast um landið á vélknúnum ökutækjum.

Fundurinn var vel sóttur af félagsmönnum og öðrum ferðamönnum og var mikið spjallað um þessi mál og menn ekki sáttir við þetta.