Laugardagur, 19 Maí 2012

Þú ert hér: Fréttaveita-section Innipúkinn

Innipúkinn

Ferðahjóla og búnaðarkvöldið tókst frábærlega.

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
IMG_1725

Í gærkvöldi héldu Slóðavinir ferðahjóla og búnaðarkvöld í sýningarsal Arctic Trucks.

Voru þarna um 15 tæki, mátti sjá þarna lítið breytt endurohjól uppí stór ferðahjól með allskyns töskum og kössum, ýmist heimasmíðað eða verksmiðjusmíða. Einnig voru þarna margar útfærslur af fjórhjólum og var gaman að sjá hvað menn útbúa hjólin sín mismikið og hvað það er hægt að gera þetta í mörgum útfærslum.

Það var mjög góð mæting og að heyra að mikill ferðahugur væri komin í mannskapinn og með að verða óþreyjufullir í að bíða eftir góðu ferðafæri.

Aron Reynis miðlaði aðeins úr reynslubanka sínum en hann hefur mikla reynslu í ferðalögum um hálendið, bæði sem jeppamaður og einnig á ýmsum gerðum að mótorhjólum.

Var mikið spjallað og hægt að skoða ýmsan búnað sem Arctic Trucks býður uppá og var það mál manna að þetta hefði verið mjög fróðlegt og skemmtilegt kvöld. Eiga þeir sem stóðu að skipulaginu ásamt eigendur hjólana hrós skilið og einnig þökkum við Arctic Trucks fyrir að bjóða okkur þessa frábæru aðstöðu.

Fleiri myndir frá kvöldinu má sjá hér.

 

IMG_1737 IMG_1729 IMG_1728 IMG_1723

Hekluskógar

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

image002Síðastliðin þrjú ár hafa félagar í Ferða- og Útivistarfélaginu Slóðavinum farið á vorin til að planta trjám og dreifa áburði á lítið svæði rétt suður af Sultartangalóni undir stjórn Hreins Óskarssonar verkefnisstjóra Hekluskóga og í samvinnu við Landgræðslu ríkisins. Árangurinn er ótrúlegur og er birkið sem gróðursett var vorið 2009 orðið allt að 50 cm trjám í dag. Þar sem áburði var dreift að vori á örfoka landi árin 2009 og 2010 er nú orðið gróið land, tilbúið undir birkiskóg. Eftir uppgræðsluferð vorið 2011 kom upp sú hugmynd að fá fleiri mótorhjólafélög  til að græða upp svæðið norðan þjóðvegarins frá Þjórsárbrúnni við Sultartangavirkjun og að Ferjufit, allt norður að Sultartangalóni (sjá mynd).

image001

Fengið var leyfi hjá sveitarfélaginu Rangárþingi Ytra og Hekluskógum til að nefna verkefnið Mótorhjólaskóg og var nokkrum mótorhjólafélögum boðið að vera með í því. Þau félög auk Slóðavina sem ætla að taka þátt í verkefninu eru: BMW Íslandi, Ernir á Suðurnesjum, HOG chapter Iceland, Bifhjólasamtök Lýðveldisins Sniglar og Skutlur kvennaklúbbur.   19.  maí næstkomandi  kl. 14.00  stefna þessi mótorhjólafélög  á að vígja „Mótorhjólaskóginn“ ( við veginn þar sem örin er á myndinni hér að ofan).

Nú er verið að safna styrkjum til að kaupa áburð og ef þú hefur áhuga á að koma að verkefninu ýmist með áburðarstyrk eða aðstoða ofantalin mótorhjólafélög við endurheimt Hekluskóga, hafðu þá samband á netföngin hreinn (at)hekluskogar.is  eða liklegur(at)internet.is .

image003image004image005     image006    image007    image008

Bíókvöld Slóðavina

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
mondo_enduro

Okkar árlega bíókvöld verður miðvikudagskvöldið 14 mars n.k.

Við höfum aftur tryggt okkur svipað stóran sal og síðast hjá Bíó Paradís (Gamli Regnboginn á Hverfisgötu).

Myndin sem verður sýnd að þessu sinni er Mondo Enduro.

Nánar um myndina hér.

Myndin er um leiðangur 7 breta sem leggja í ferð sem gengur út á að fara sem lengstu mögulega landleið umhverfis jörðina á sem skemmstum tíma og þau ævintýri sem þeir lenda í á leiðinni. Ferðin tók þá rúmlega eitt ár og var farin af algjörri naumhyggju og með eins litlum tilkostnaði og mögulegt var.

Sýningin hefst klukkan 20:00.

Síðast seldist upp og verður eingöngu selt inn á staðnum og byrjar miðasala 30 mínútum fyrir sýningu.

4 ára afmælisfundur Slóðavina

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
4_ra_afmlisfundur_Slav_004

Það var ánægjulegt hvað margir sáu sér fært með að eiga skemmtilegt kvöld með okkur á 4ra ára afmælisfundinum þrátt fyrir landsleik í handbolta og svo fjölgaði strax eftir leikinn. Voru það hátt í hundrað manns sem komu og var gaman að sjá mörg ný andlit þarna.

Kynntur var nýr bæklingur fyrir árið 2012 og einnig plakat sem við ætum að reyna hengja upp á sem flestum stöðum þar sem mótorhjólaáhugafólk venur komur sínar.

Ásgeir formaður renndi yfir dagskrá ársins og kynnti til þá sem halda viðburðina og var farið lauslega yfir hvern viðburð fyrir sig og gátu viðstaddir spurt spurninga um hvern viðburð.

Einnig var félagsmönnum bent á að gott væri að nota spjallið til þess að skipuleggja fleiri ferðir.

IMAG0481Eftir kynninguna var boðið uppá kökur og tilheyrandi meðlæti og menn spjölluðu og var að heyra að það væri mikill hugur í mönnum fyrir sumarið

Stjórn þakkar fyrir skemmtilegt kvöld

Aðalfundur 2011

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Kæru félagsmenn Ferða og útivistarfélagsins Slóðavina,

Ákvörðun hefur verið tekin að fresta aðalfundi um 2 vikur frá áður auglýstri tímasetningu, vegna persónulegra ástæðna stjórnarmanna.

Aðalfundur Ferða og útivistarfélagsins Slóðavina verður því haldinn miðvikudagskvöldið 9. nóvember í húsakynnum Arctic Trucks, Kletthálsi. Fundurinn hefst kl. 20:00. Í lok fundar verður boðið upp á kaffiveitingar.

Dagskrá:

1. Setning fundar og dagskrá kynnt.

2. Kosning fundarstjóra og fundarritara

3. Skýrsla stjórnar

4. Umræða um skýrslu stjórnar

5. Skoðaðir reikningar lagðir fram og skýrðir

6. Umræða um reikninga og þeir bornir upp til samþykktar

7. Skýrsla nefnda

8. Kjör stjórnar og varamanna. Í boði er sæti formanns, tveggja stjórnarmanna og varamanns

9. Tillögur/lagabreyting

          a. Tillaga að stofnun Ferðafrelsissjóðs kynnt og lög sjóðsins lögð til samþykktar. Lögin má sjá í heild sinni á spjallborði félagsins

10. Kjör tveggja skoðunarmanna

11. Önnur mál

12. Fundarslit

Rétt til setu á aðalfundi hafa einungis þeir sem hafa staðið full skil á gjöldum til félagsins [3.gr. laganna] Félagar eru hvattir til að mæta og með því taka virkan þátt í starfi félagsins.

Lög félagsins má nálgast á heimasíðu félagsins, www.slodavinir.org.

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL