Það voru nokkrir Slóðavinir sem mættu niður í Valhöll í kvöld á opin fund sem Vörður, fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík stóð fyrir en þetta er 3 fundurinn um þessi málefni, áður hafa verið haldnir samskonar fundir á Akureyri og Egilsstöðum.
Voru hátt í 200 manns sem mættu frá hinum ýmsu útivistarfélögum, skógrækt og landverðir.
Þarna voru flottir fyrirlesarar, Elín Björg Ragnarsdóttir lögfræðingur fór yfir Hvítbók og lögfræðilega túlkun hennar, Einar Haraldsson skotveiðimaður fór yfir þjóðgarða og friðlýst svæði, Sveinbjörn Halldórsson formaður regnhlífarsamtakanna Samút fór yfir aðkomu þeirra að vinnuferlum varðandi friðun og þjóðgarða og að lokum tók Ásta Þorleifsdóttir jarðfræðingur og formaður Náttúrusamtaka Austurlands.
Komu margir góðir punktar fram hjá þeim öllum og fróðlegt að heyra þeirra sýn á þessi hjartans mál okkar um ferðafrelsið.
Eftir fyrirlestrana var salnum boðið orðið og komu margar skemmtilegar skoðanir, einnig steig í pontu Snorri landvörður í Vatnajökulsþjóðgarði og var að sumu leyti sammála fyrirlesurunum en einnig á öndverðum meiði með annað, var hann t.d alls ekki sammála því að útivistarfólki og hagsmunaaðilum hafi verið haldið frá ákvarðanatökum varðandi lög um þjóðgarðinn.
En svona heilt yfir var þetta flottur fundur sem Guðlaugur Þór Þórðarson stýrði og greinilegt að flestir eru svipað þenkjandi í þessum málum en það þarf að slípa þetta til og fá stjórnvöld til þess að hlusta á fólkið í landinu, þ.e.a.s fólkið sem er að ferðast um landið, ekki kerfisfólk sem fer aldrei út fyrir borgarmörkin, sér í lagi ekki uppfyrir hálendislínu.



