Laugardagur, 19 Maí 2012

Þú ert hér: Heim

Slóðavinum hrósað hjá Hekluskógum

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Frétt tekin af Hekluskógum

 

Vorverkin í Hekluskógum (15.5.2011)

Gróðursetning hófst í byrjun maí og hafa nú þegar verið gróðursettar um 75 þúsund plöntur aðallega birki en einnig reyniviður. Gróðursett er víða um svæðið allt frá Gunnarsholti í suðri upp í Vaðöldu sunnan Sultartangalóns í norðri. Landeigendur hafa að mestu séð um gróðursetningu, en 160 þátttakendur hafa gert samning við Hekluskóga um plöntustyrk í sín lönd. Einnig hafa nokkrir hópar heimsótt Hekluskóga og von er á fleirum á næstu vikum.

.

Ungmennafélagar frá Selfossi úr fjórða flokki í handknattleik, mættu aðra helgina í maí ásamt fjölskyldum og gróðursettu í 10 þúsund plöntur í uppgræðslusvæði við gamla Hjálparfossveginn í Þjórsárdal. Stóðu krakkarnir sig afar vel og kláruðu verkið á um fjórum klukkustundum.

 

Ferða og útivistarfélagið Slóðavinir hefur undanfarin ár unnið að uppgræðslu og gróðursetningu í svokallaða Vaðöldu, sem er á sunnan við gömlu Tungná og Sultartangalónið. Er verkefnið unnið í samvinnu við Landgræðslu ríkisins sem hefur látið áburð til verkefnisins. Nú þegar hefur nyrðri helmingur öldunnar fengið áburðargjöf og breyst úr örfoka mel í graslendi. Birki hefur verið gróðursett í hluta svæðisins og hefur það að mestu lifað af þrátt fyrir berangrið á svæðinu enda eru trén sett í skjól við stórgrýti.

Plöntur koma vel undan vetri

Eitt af verkefnum vorsins er at fylgjast með gróðursetningum fyrri ára. Virðast plöntur almennt hafa komið afar vel undan vetri eins og meðfylgjandi myndir sýna. Þarna er um að ræða plöntur úr gróðursetningum á Ferjufit við Þjórsá, í Brekknaheiði ofan Gunnarsholts, í Vaðöldu og í Leirdal. Á öllum svæðum virðast plöntur hafa vaxið vel síðasta sumar og eru toppar almennt heilir enda haustið frostlaust fram í október.