Minnum á hópakstur Sniglanna 1. maí næstkomandi. Safnast verður saman á laugarveginum uppúr klukkan 11:00 og röð mynduð frá mótum Bankastrætis og Laugarvegar, keyrslan sjálf hefst Kl 12:00 og verður ekið niður Bankastræti, til vinstri Lækjargötu og svo til hægri Vonarstrætið meðfram Tjörninni. Suðurgata er ekin í suður og svo Hringbrautin niður að JL húsinu. Þá er ekinn Grandinn niður að Geirsgötu sem er ekin meðfram höfninni niður á Sæbraut. Sæbraut er að lokum ekin út að Íslandsbanka og komið inn á Laugarnesveginn áður en ekið er inn á Sundlaugarveg og inn á Kirkjusand.Hjólafólk er hvatt til að láta í sér heyra með flauti þegar Vonarstræti er ekið til að minna stjórnsýsluna á okkur.
Dagskrá á Kirkjusandi:
Íslandsmeistara keppni í vespufimi, Lundavespur útvega „keppnistæki"
Keppt verður í Snigilakstri
"ölvunarakstur" á vespu með sérstökum Ölvunnar-gleraugum
Kynningar frá umboðsaðilum
Kaffi á könunni og djús fyrir krakkana
ofl
Þema dagsinns er "Mótorhjólafólk er líka fjölskyldufólk" og hvetjum við alla til að koma með börnin sín með sér á planið á kirkjusandi .
Einnig viljum við sérstaklega benda krökkum og ökumönnum á vespum og skellinöðrum á það þau eru velkomin með í hópaksturinn, sem og keppni og leiki á Kirkjusandi



