Laugardagur, 19 Maí 2012

Þú ert hér: Aurbleytusjá

Aurbleytusjá

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Vegagerðin hefur gefið félögum í Slóðavinum heimild til að skoða frostdýptarmælinet stofnunarinnar. Um er að ræða tilraunaaðgang en vefviðmótið er enn í mótun og því er aðgangur takmarkaður.

Þeim tilmælum er beint til félagsmanna að dreifa ekki linknum og aðgangsorðum vegna þess að óvíst er að vefkerfið ráði við að taka inn mjög margar fyrirspurnir í einu.

http://www.vegagerdin.is/upplysingathroun/vefgreinir/frostdypt

user: klaki
pw: v3gag3rd 

Þær upplýsingar sem Aurbleytusjáin gefur okkur eru t.d.

Ástand jarðar niður á 1,1meter.

Grænn merkir þurr jörð.
Rauður merkir blaut jörð.
Blár merkir frosin jörð.

Þessar hita- og rakaupplýsingar er hægt að sækja allt að eitt ár aftur í tímann.

 1frostdypt

Vaktsíða sem sýnir stöðu jarðvegs hringin í kringum landið. Þegar einstaka stöð er valin birtast nákvæmari upplýsingar.

Það eru um 40 mælar innan kerfisins.

 2frostdypt-vakt
 Hægt er að framkalla línurit sem sýnir hita og leiðni fyrir valið tímabil.
 3frostdypt-linur

 Hægt er að kalla fram gögn á töfluformi.

Þeir sem vilja stunda frekari greiningu á gögnunum geta afritað (copy) gögn úr töflu og  skeytt þeim svo inn í t.d.Excel (paste special - text).

 4frostdypt-tafla