Heim

Dagskrá félagsins

Last month Mars 2010 Next month
M Þ M F F S S
week 9 1 2 3 4 5 6 7
week 10 8 9 10 11 12 13 14
week 11 15 16 17 18 19 20 21
week 12 22 23 24 25 26 27 28
week 13 29 30 31
 

Næstu viðburðir

10.Mar Vinnukvöld í skúrnum, tvíhjól (Námskeið Miðvikudagur @19:00)
13.Mar Fjórhjól - erfið dagsferð (Dagsferð Laugardagur @13:00)
24.Mar Félagsfundur (Fundur Miðvikudagur @20:00)
27.Mar Fjórhjól - helgarferð að Vík í Mýrdal (Helgarferð Laugardagur @08:00)
31.Mar Skyndihjálp mótorhjólafólks (Námskeið Miðvikudagur @19:00)
07.Apr Félagsfundur (Fundur Miðvikudagur @20:00)
16.Apr Kerlingafjöll (Helgarferð Föstudagur @00:00)
21.Apr Félagsfundur. Dagur vondra vega (Fundur Miðvikudagur @20:00)
22.Apr Reykjanesferð á sumardaginn fyrsta (Dagsferð Fimmtudagur @00:00)
22.Apr Sniglar - hjóladagurinn (Dagsferð Fimmtudagur @00:00)
Ferða og útivistarfélagið Slóðavinir
vinnukvöld fyrir tvíhjól Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Þriðjudagur, 09. mars 2010 11:01

Vinnukvöld fyrir tvíhjól

Félagið minnir á vinnukvöldi í skúrnum miðvikudaginn 10. mars.  Vinnukvöldið fer fram hjá JHM-Sport, Stórhöfða 35 og hefst kl. 19:00. Þátttökugjald er 500kr. og greiðist á staðnum.  Kári Jónsson, íslandsmeistari í endúró og verkstæðismaður hjá JHM-sport, verður með sýnikennslu hvernig maður getur stillt tvíhjólið eftir aðstæðum og fengið sem mest út úr því hverju sinni, hvort sem þetta er á ísnum, í sandi, nýbyrjandi eða vanur hjólari.

Leitað verður til sérfróðra atvinnu- og áhugamanna um málefni sem snú að viðhaldi og viðgerðum á tvíhjólum, t.d farangur, töskur og festingar og að þessu sinnu verður Jón H Magnússon lika að kynna fyrir okkur það sem er nýtt á markaðnum i dag.

 
Fjórhjólaferð Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Slóðavinir   
Fimmtudagur, 04. mars 2010 23:38

Fjórhjólaferðin 4.mars gekk mjög vel. Fjögur fjórhjól lögðu af stað frá kaffistofunni um kl. 18 og fóru inn að innstadal. Færið var frekar þungt, blautur snjór en þjappaðist ágætlega og voru þetta kjörnar aðstæður til að æfa sig. Við fórum aðeins yfir dekk, úr hleypingar  og aksturstækni.

Nánar...
 
Fjallabaksferðin Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Fimmtudagur, 04. mars 2010 11:13

Ferðasaga úr síðustu ferð þar sem 7 fjórhjólamenn fóru helgarferð inn við Þórsmörk.

Fjallabaksferðin gekk ekki alveg eftir stóra planinu en samt er nú alltaf gaman ! Planið var að fara Emstruleið og komast í Strútslaug, en við komumst nú ekki lengra en að Emstruskála eða um 1/3 af leiðinni.

Veðrið setti stórt strik í ferðina, ROK og meira rok og smá púðursnjór.

Nánar...
 
4x4 á rás2 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Miðvikudagur, 03. mars 2010 09:06

Frétt af vef Ferðaklúbbsins 4x4:

Vegna herferðar ýmsa aðila í fjölmiðlum að undanförnu um slóðagerð þá verða fulltrúar F4x4, þeir Þorsteinn I. Víglundsson og Skúli H. Skúlason í viðtali á rás 2 í dag miðvikudaginn 3. mars kl. 17:30. Hægt er að hlusta á viðtalið hér http://dagskra.ruv.is/streaming/ras2/live/ og hvetjum við að sjálfsögðu alla til að leggja við eyrun.

 
Fjórhjól - dagsferð fyrir byrjendur Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Slóðavinir   
Þriðjudagur, 02. mars 2010 20:41

Fjórhjólaferð í snjó

Vegna veðurs hefur verið ákveðið að færa ferðina sem átti að vera á laugardaginn 6.mars fram á fimmtudaginn 4.mars. Mæting við litlu kaffistofuna klukan 18, farið verður um Hengilsvæðið og reynt að finna mismunandi aðstæður í snjó og ám, farið yfir dekk og aksturstækni.

Það er komið töluvert af snjó á hengilsvæðið, en spáð er rigningu og hita um næstu helgi og fram eftir næstu viku svo við verðum að grípa tækifærið og komast í smá snjó fyrir sumarið.

 

Skráning fer fram Hér

 
Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Sunnudagur, 28. febrúar 2010 22:03
felagsfundur-3mar10-omar-andres
 
Umfjöllun um málstofu í Bændablaðinu Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Fimmtudagur, 25. febrúar 2010 13:42

Í Bændablaðinu, sem kom út í dag, er grein um málþing Landbúnaðarháskólans sem fram fór fyrir skemmstu.  Þar fjallaði Andrés Arnalds um akstur mótorhjóla og vildi meina að megnið af þeim landsspjöllum og landeyðingu sem við horfum á í dag væri af þeirra völdum. Andrés lætur kortafyrirtækin heyra það, sem og stofnanir og ferðaþjónustufyrirtæki.

Andrés kemur á félagsfund Slóðavina 3. mars, þar sem hann kemur til með að flytja sama erindi og hann flutti á málstofunni.  Greinin er á blaðsíðu 12 í Bændablaðinu.

 
vinnukvöld - 10 mars Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Fimmtudagur, 25. febrúar 2010 13:24

Stillingar

Búnaður

Vakin er athygli á því að Hilde hefur sett inn nánari upplýsingar um vinnukvöldið sem fram fer 10. mars næstkomandi.  Kvöldið er ætlað tvíhjólum.  Sjá nánar hér.
 
ventlar, kúpling og pústkerfi Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Fimmtudagur, 25. febrúar 2010 08:41

Vinnukvöld í skúrnum fór fram hjá Arctic Trucks í gærkvöldi, um 20 manns voru mættir. Björgvin Stefánsson og Stefán Jóhannesson hjá Arctic Trucks voru leiðbeinendur kvöldsins. Farið var yfir ventlastillingar í 4 gengis hjólum og hvað ber að varast við slíka aðgerð. Stefán lagði mikla áherslu á að hafa viðgerðarhandbók hjóls við hendina og lesa hana vel áður en hafist er handa. Farið var yfir hvernig kúplingsskipti fara fram og hvernig mæla skal slit kúplingsdiska og gorma. Björgvin spreytti sig á dekkjaskiptum á meðan menn ræddu mismunandi gerðir dekkja og slanga og hversu mikinn loftþrýsting er skynsamlegt að hafa í dekkjum. Að lokuim fór Ásgeir Örn Rúnarsson yfir mismunandi gerðir pústkerfa og þær aðferðir sem hægt er að beyta til að draga úr hljóðstyrk hjóla með svokölluðu "silent insert".

Gögn frá kvöldinu eru aðgengileg innskráðu félagsfólki hér á vefnum

 
Fjallabaksferð Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Þriðjudagur, 23. febrúar 2010 10:26

Picture_055

Næstkomandi föstudag 26. febrúar verður lagt af stað í fjórhjólaferð, gist verður 2 nætur í Fljótsdal við rætur Þórsmerkur.

Reynt verður að fara svokallaða Emstruleið, upp með Markarfljóti og in á Mælifellssand og stinga tánum í strútslaug. Seinni dagurinn verður sennilega aðeins styttri, Tindafjöll og nágrenni.

 

 

 

Skráning stendur yfir Hér , staðurinn tekur einungis 17 manns og því um að gera að skrá sig sem fyrst.

Nánari upplisingar gefur Kristján í síma 692-5735 og á spjallinu.

 

 
Verndaráætlun vestursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Þriðjudagur, 23. febrúar 2010 09:05

Eftirfarandi tilkynning barst félaginu frá Vatnajökulsþjóðgarði:

Framundan eru kynningarfundir vegna verndaráætlunar vestursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs, sem undanfarna mánuði hefur staðið yfir vinna við.  Efni hennar er fjölþætt og tekur jafnt til verndunar og nýtingar á því landi sem tilheyrir þjóðgarðinum.

Nánar...
 
Engin kreppa í félagsstarfinu Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Sunnudagur, 21. febrúar 2010 23:19

TUGIR VINNA

FYRIR FÉLAGIÐ

Í dag eru fjölmargir Slóðavinir að vinna fyrir félagið með það að leiðarljósi að gera hjólaumhverfið betra en það er í dag. Dropinn holar steininn og ljóst þykir að um þessar mundir eru mjög margir dropar að störfum. Þrátt fyrir neikvæða umræðu undanfarið virðist sem hjólafólk láti hana sem vind um eyrun þjóta og stefnir markvist að því að skáka nöldurseggjum og niðurrifspúkum með fræðslu og skipulagi.

Nánar...
 
Afsláttur til félagsmanna Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Föstudagur, 19. febrúar 2010 15:17

fjorhjolalagerinnKomið þið sælir/ar.

Jæja þá er síðan okkar loksins kominn í loftið www.4h.is
Og bjóðum við öllum fjórhjóla klúbbsmeðlimum og björgunarsveita fólki 12% staðgreiðslu afslátt.

Það sem þið þurfið að gera er að senda okkur afrit af einu af ykkar skírteinum í tölvuformi svo við höfum það í tölvunni hér hjá okkur og einnig verðið þið að kynna ykkar fólki þennan afsláttinn og að það þurfi að sína skírteiniAf skiljanlegum ástæðum getum við ekki skrifað um áfsláttinn á síðunni hjá okkur 12% afsláttur af lítilli álagningu er stór afsláttur.


Yfir líst markmið okkar er að bjóða lægstu verð sem mögulegt er hverju sinni.
Afslátturinn virkar að sjálfsögðu ekki þegar um tilboð er að ræða.

kv
Fjórhjólalagerinn hf.
S:5883355
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
www.4h.is

 
Málstofa um akstur utan vega Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Slóðavinir   
Laugardagur, 13. febrúar 2010 21:02

Andrés Arnalds,fagmálastjóri Landgræðslunar.

Landbúnaðarháskóli Íslands stendur fyrir málstofu um akstur utan vega, mánudaginn, 15. febrúar, kl. 15:15 á Keldnaholti. Að þessu sinni verður sérstaklega tekið fyrir akstur torfærutækja, en skv. frummælanda er akstur þessara tækja vaxandi vandamál og umhverfislæsi ökumannanna dapurt. Frummælandi er Andrés Arnalds, starfsmaður Landgræðslu ríksins, og kallar hann erindi sitt "Ísland örum skorið". Skv. heimildum vefsins er þetta ekki frumflutningur erindisins, og heldur ekki loka flutningur, því Andrés ætlar með erindið víða. Stjórn Slóðavina hefur m.a. bókað Andrés til sín og mun hann flytja erindið á félagsfundi 3. mars næstkomandi.

Áhugafólk um akstur mótorhjóla, umhverfis- og skipulagsmál er kvatt til að mæta, enda aldrei að vita nema hjólinu þínu bregði fyrir í erindinu.

Nánar...
 
Vinnukvöld í skúrnum fyrir öll hjól Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Þriðjudagur, 23. febrúar 2010 00:10

Ventlastillingar

Kúplingsskipti

Dekkjaskipti

"silent insert"

Félagið vekur athygli á því að næstkomandi miðvikudagskvöld, kl. 19:00, stendur félagið fyrir Vinnukvöldi í skúrnum. Viðburðurinn fer fram hjá Arctic Trucks  Það verða þeir Björvin og Stefán hjá mótorhjólaverkstæði Arctic Trucks sem koma til með að láta ljós sitt skína.  Þeir félagar koma til með að fara yfir ventlastillingar, kúplingsskipti og dekkjaskipti.  Umsjónarmaður kvöldsins, Ásgeir Örn, hefur verið að gera tilraunir með "silent insert" sem er aðferð til að draga úr hljóðstyrk pústkúta án þess að draga úr afli hjólanna. Þessi aðferð verður kynnt.

Athygli er vakin á því að þátttökugjald er 500kr.

 
Stærstu mótorhjólasamtök AMA heiðra slóðafólk Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Laugardagur, 20. febrúar 2010 23:41

monaandruss2Stæðstu hjólasamtök ameríku AMA buðu um síðustu áramót í heiðurhöllina(Hall of fame) manneskju sem má kalla "mömmu slóðana" í Montanaríki þar sem rætur NOHVCC liggja. Er hér um að ræða Monu Ehnes, en hún á að baki ansi langan feril í kringum mótorhjól en hún byrjaði á Hondu 50 á fyrri hluta sjötta áratugarins og árið 1967 stofnaði hún ásamt manni sínum mótorhjólabúð ásamt allri þjónustu tengum þeim og vélsleðum.

Nánar...
 
Þorrablótsferð - fyrri dagur Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Sunnudagur, 14. febrúar 2010 22:15

thorrablot10-Hjol

thorrabod10-thvottur

Veljið myndir til að fá þær stærri.

Hér kemur frásögn frá fyrri degi ferðar Slóðavina á Snæfellsnesið. Seinnihlutinn verður opinberaður á félagsfundinum á miðvikudaginn, en þá verður sagt frá Endúróbúgarðinum.

Á slaginu 8.00 voru flestir mættir á SHELL eins og fyrirhugað var. Skömmu síðar ók hersingin af stað í átt að Snæfellsnesi. Á milli10 og 11 voru 26 Slóðavinir mættir á Gistiheimilið Langaholt á Snæfellsnesi, en Tóti var þá staddur í Borgarnesi að bíða eftir að kaupa töfrabragðavökva fyrir Gunna Kafara. Eftir að hafa verið vísað í svefnstæði voru Slóðavinir snöggir að skipta um föt og fara að hjóla. Um 12 leitið kom Tóti og frú með töfrabragðavökvann hans Gunna og skelltu sér á hjólin og nú var Slóðavinahópurinn orðinn 28 hausar með hjálma.

Nánar...
 
Sögustundin gekk vel Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Fimmtudagur, 11. febrúar 2010 08:55

Sogustund-1-2010Hin árvissa sögustund Slóðavina og Bernhard fór fram í gærkvöldi þar sem sagðar voru sannkallaðar hetjusögur úr nokkrum mótorhjólatúrum. Elstu sögurnar voru yfir 60 ára gamlar og þær nýjustu voru 25 ára gamlar.

Þeir hjá Bernhard tóku vel á móti gestum með kaffi, flatkökum og kleinum og Gylfi hafði hengt upp gamlar myndir frá því um 1974, en á þessum myndum voru aðallega Honda XL 350 og Honda SL 350 upp á Sandskeiði (vonandi fá þessar myndir að hanga uppi út mánuðinn).

 

Nánar...
 
«FyrstaFyrri12NæstaSíðasta»

Síða 1 af 2
 

Nýjasta spjallið

9.03 Re:Heimasmíðuð C... [svör:3 - lesið: 56]
Svona tæknilegt spjall er bara af hinu góða. Það er órjúfanlegt að fákar okkar innihaldi einhver...
9.03 Fjórhjóladekk [svör:0 - lesið: 8]
Komið þið sælir, ég er með dekk og felgur sem passa beint undir Can Am til sölu. Dekkin eru 14 f...
8.03 Re:Dekkja Viðger... [svör:10 - lesið: 122]
Sælir félagar Það er nú svo skondið með reiðhjólabætur sem fengust einu sinni á öllum bensínstö...
7.03 Re:Þorrablótsferð. [svör:59 - lesið: 1048]
missti af þessari ferð vonandi var gaman buinn að berja mig i hausinn síðan Vonandi var hj...
5.03 Re:TATOU 4S Belti. [svör:16 - lesið: 122]
Smá leiðrétting. Daði Lagði leið uppi Nitro og ætlaði að fá frekari upplýsingat um TATOU 4S ...
4.03 Re:Australia [svör:1 - lesið: 55]
Ég fór einmitt að velta þessu fyrir mér eftir fundinn í gær. Held að Ómar hafi eingöngu verið a...
4.03 Re:Með 2 i útvik... [svör:15 - lesið: 136]
neipp sá ekki rassgat fyrir snjóblindu :D flott til hamingju með hitann og festingarnar
Meira ...
akstur-2-banner
banner-umferdarlogbanner-vegalogbanner-skipulagslogbanner-thodminjalog

Vélhjólaskýrsla

Skýrsla samin af starfshóp Umhverfisstofnunar

og Mótorhjóla- og snjósleðasambands Íslands.

Velhjolakapa_small

Aðvörun: Stórt pdf skjal (2.2mb)

 


Borði
skipulagslog-endursk
4Es-bantext